| 30.10.2007 - - Fundur 214 - Sveitarstjórn Sveitarstjórn Skagafjarðar Fundur 214 - 30. október 2007 Ár 2007, þriðjudaginn 30. október kl. 16:00, kom Sveitarstjórn Skagafjarðar saman til fundar í Safnahúsi við Faxatorg á Sauðárkróki. Mætt voru: Þórdís Friðbjörnsdóttir, Einar E. Einarsson, Sigurður Árnason, Íris Baldvinsdóttir, Páll Dagbjartsson, Sigríður Björnsdóttir, Gísli Sigurðsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Úlfar Sveinsson. Auk þess sat fundinn Margeir Friðriksson, fjármálastjóri, staðgengill sveitarstjóra. Fundarritari var Engilráð Margrét Sigurðardóttir.
Forseti leggur til að lið 1 verði vísað til afgreiðslu með 1. lið fundargerðar Byggðarráðs frá 23. okt. 2007, sem er einnig um endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007 og er það samþykkt samhljóða. Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Margeir Friðriksson fjármálastjóri kynnti síðan 1. lið: Endurskoðun fjárhagsáætlunar f. árið 2007. Enginn kvaddi sér hljóðs. Dagskrárliður nr.1: Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007 - borinn undir atkvæði og samþ. með 5 atkvæðum. Fundargerðin að öðru leyti borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað að þeir sitji hjá við afgreiðslu endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar. Fulltrúi VG óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar. Sigurður Árnason tók til máls og lagði fram bókun frá meirihluta sveitarstjórnar: “Ánægjuleg merki eru í endurskoðaðri fjárhagsætlun um að rekstur sveitarfélagsins sé á réttri leið. Nauðsynlegt er að halda áfram að sýna aðhald í rekstri án þess þó að skerða þjónustu. Með því byggjum við grundvöll fyrir brýnum og kostnaðarsömum framkvæmdum ásamt því að möguleikar gefast til að þróa þjónustu sveitarfélagsins enn frekar” Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir Þórdís Friðbjörnsdóttir Einar E. Einarsson Sigurður Árnason Íris Baldvinsdóttir
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, með leyfi 2. varaforseta, Sigurður Árnason. Þá Páll Dagbjartsson sem ber upp tillögu um að leggja til við Menningar- og kynningarnefnd að hún útfæri texta og leggi fram nýjar verklagsreglur með áorðnum breytingum. - Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Tillaga Páls borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Páll Dagbjartsson kvaddi sér hljóðs, fleiri ekki. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16.45. | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Til baka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||