| 04.12.2007 - - Fundur - Atvinnu- og ferðamálanefnd Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar Fundur – 04.12. 2007 Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, þriðjudaginn 04.12.2007, kl. 13:00. Fundinn sátu Snorri Styrkársson, Gunnar Bragi Sveinsson, Páll Dagbjartsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð. Þorsteinn Broddason sat fundinn undir lið 1. DAGSKRÁ: 1) Iðnaðarlóðir í Skagafirði 2) Þriggja fasa rafmagn 3) Alice á Íslandi ehf 4) Tilnefning í starfshóp um endurskoðun rekstrarsamnings skíðasvæðis. 5) Matarkistan Skagafjörður 6) Tjaldstæði í Varmahlíð 7) Fjárhagsáætlun 2008 8) Önnur mál AFGREIÐSLUR: 1) Iðnaðarlóðir í Skagafirði Áskell Heiðar og Þorsteinn gerðu grein fyrir vinnu sinni varðandi aðkomu sveitarfélagsins að iðnaðaruppbyggingu í Skagafirði. 2) Þriggja fasa rafmagn Erindi vísað frá Byggðarráði til afgreiðslu. Nefndin felur sviðsstjóra að kanna stöðu þriggja fasa rafmagnstenginga í samvinnu við landbúnaðarnefnd og svara erindinu í framhaldi af því. 3) Alice á Íslandi ehf Sviðsstjóra falið að óska eftir frekari upplýsingum um málið frá fyrirtækinu. 4) Tilnefning í starfshóp um endurskoðun rekstrarsamnings skíðasvæðis. Erindi vísað frá Félags- og tómstundarnefnd. Nefndin tilnefnir Áskel Heiðar, sviðstjóra í starfshópinn. 5) Matarkistan Skagafjörður Rætt um næstu skref varðandi aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu Matarkistan Skagafjörður. 6) Tjaldstæði í Varmahlíð Sviðsstjóra falið að auglýsa eftir aðilum til að taka að sér rekstur á nýju tjaldstæði við Reykjarhól í Varmahlíð. 7) Fjárhagsáætlun 2008 Nefndin gerir ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun fyrir aðra umræðu. 8) Önnur mál Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00 |
| Til baka |