Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
01.07.2010 - - Fundur 266 - Sveitarstjórn

Sveitarfélagið Skagafjörður
266. fundur – sveitarstjórnar
haldinn í Safnahúsi við Faxatorg, fimmtudaginn 1. júlí 2010
og hófst hann kl. 16:00
 
Fundinn sátu:
Bjarni Jónsson, Stefán Vagn Stefánsson, Sigríður Magnúsdóttir, Bjarki Tryggvason, Viggó Jónsson, Jón Magnússon, Sigríður Svavarsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Margeir Friðriksson.
 
Fundargerð ritaði: Helga S Bergsdóttir stjórnsýsluritari.
 
Dagskrá:
 
1. 1006011F - Byggðarráð Skagafjarðar - 519
Fundargerð 519. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 266. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Sigurjón Þórðarson kvaddi sér hljóðs. Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.1. 1006154 - Kosning formanns byggðarráðs
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.2. 1006155 - Kosning varaformanns byggðarráðs
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.3. 1005247 - Lánsumsókn 2010
Lánsumsókn hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. sem samþykkt var á 519. fundi byggðarráðs og vísað til samþykktar í sveitarstjórn.
 
"Sveitarstjórn samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 300.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið vegna byggingar leikskóla, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Margeiri Friðrikssyni sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, kt. 151060-3239, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning nr. 23/2010 við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari."
 
Sigurjón Þórðarson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Fyrir sveitarstjórn liggur að fjalla um 300 milljóna lántöku sveitarfélagsins en Frjálslyndir og óháðir telja að áður en að málið verði afgreitt þá verði skilmerkilega gerð grein fyrir lykiltölum um fjárhagslega stöðu og skuldbindingar sem hvíla á Sveitarfélaginu Skagafirði, í upphafi nýs kjörtímabils, nú í júní 2010.
 
1. Heildartekjur, þ.e. allar rekstrartekjur, sem jafnframt eru reiknaður á hvern íbúa.
2. Laun og annar rekstrarkostnaður.
3. Framlegð, þe. heildartekjur að frádregnum rekstrargjöldum, öðrum en afskriftum af rekstrarfjármunum og fjármagnskostnaði, jafnframt reiknað sem hlutfall af heildartekjum.
4. Rekstrarniðurstaða.
5. Veltufé frá rekstri.
6. Fjárfestingarhreyfingar.
7. Veltufjárhlutfall.
8. Veltufjármunir og langtímakröfur
9. Veltufjármunir , þ.m.t. skuldbindingar.
10. Peningaleg staða.
11. Eigið fé.
 
Greinargerð
Kjörnir fulltrúar í Sveitarstjórn Skagafjarðar fengu bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sem dagsett var þann 18. júní sl. þar sem gerð var grein fyrir hlutverki nefndarinnar og þeim skyldum sem hvíla á herðum sveitarstjórna sem snúa að fjármálum
sveitarfélaga. Í bréfinu voru áðurtaldar lykiltölur taldar upp og bent á að með miklum lántökum væri verið að ráðstafa framtíðartekjum til greiðslu vaxta og afborganna. Sömuleiðis var bent á það viðmið að heildarskuldir og skuldbindingar færu ekki yfir
150% af rekstartekjum sveitarfélagsins og stefna bæri að lægra skuldahlutfalli.
 
Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Gert var ráð fyrir unræddu láni í samþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagins fyrir árið 2010 í tengslum við framkvæmdir við leikskóla á Sauðárkróki. Það lán sem hér er til afgreiðslu er í
samræmi við þær samþykktir síðustu sveitarstjórnar. Ennfremur er vísað til samþykktar byggðarráðs frá 1. júlí þar sem "Lagt er til að endurskoðandi sveitarfélagsins framkvæmi
milliuppgjör pr 30.06.2010 fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Í uppgjörinu komi fram rekstrarniðurstaða í samanburði við fjárhagsáætlun, uppreiknaða eignir, skuldir og skuldbindingar og helstu lykiltölur sambærilegar þeim er birtast í ársreikningi hverju
sinni...einnig komi fram þær samanburðartölur og viðmið sem Eftirlitsnefnd sveitarfélaga notar."
 
Jón Magnússon, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kvöddu sér hljóðs þá Bjarni Jónsson með leyfi varaforseta. Einnig tóku til máls Sigurjón Þórðarson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.
 Bjarni Jónsson tók til máls með leyfi varaforseta og bar fram þá tillögu um að vísa tillögu Sigurjóns Þórðarsonar til byggðarráðs.
 
Sigurjón Þórðarson tók til máls.
Bjarni Jónsson dró tilbaka tillögu sína um að vísa tillögu Sigurjóns Þórðarsonar til byggðarráðs.
 
Tillaga Sigurjóns Þórðarsonar borin undir atkvæði. Felld með fimm atkvæðum gegn einu, þrír sátu hjá.
 
Lánsumsóknin hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. var borin undir atkvæði og samþykkt með átta atkvæðum, Sigurjón Þórðarson óskar bókað að hann sitji hjá.
 
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.4. 1006171 - Hluthafasamkomulag júní 2010
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.5. 1006157 - Endurnýjun tækja í þjónustustöð
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með átta atkvæðum. Sigurjón Þórðarson óskar bókað að hann sitji hjá.
 
1.6. 1006133 - Kjör fulltrúa í stjórn Versins, vísindagarða
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.7. 1006043 - Aðalfundarboð 2010
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.8. 1006041 - Styrkbeiðni - Jónsmessuhátíð á Hofsósi
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.9. 1006010 - Umsókn um styrk
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
 
1.10. 1006153 - Aðalfundur í Gagnaveitu Skagafjarðar ehf.
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
 
1.11. 0912040 - Stækkun friðlandsins í Þjórsárverum
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
1.12. 1005273 - Fundur um leikskólamál
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
 
1.13. 1006081 - Nýir sveitarstjórnarmenn - skyldur sveitarfélaga
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
 
1.14. 1006143 - Aðilaskipti að landi
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
 
1.15. 1006156 - Úttekt á fjármálalegri stöðu sveitarfélagsins
Afgreiðsla 519. fundar byggðaráðs staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
 
2. 1006013F - Atvinnu- og ferðamálanefnd - 63
Fundargerð 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar lögð fram til afgreiðslu á 266. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Bjarni Jónsson kynnti fundargerð. Sigurjón Þórðarson kvaddi sér hljóðs.
 
2.1. 1006185 - Kosning formanns Atvinnu- og ferðamálanefndar
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
2.2. 1006186 - Kosning varaformanns Atvinnu- og ferðamálanefndar
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
2.3. 1006187 - Kosning ritara Atvinnu- og ferðamálanefndar
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
2.4. 1006021 - Staða verkefna á sviði atvinnu- og ferðamálanefndar
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
2.5. 1006184 - Staða fjármála á liðum Atvinnu- og ferðamálanefndar 22.06.2010
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
2.6. 1002010 - Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010
Sigurjón Þórðarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Byggðakvótinn hefur verið eina nauðvörnin í ómögulegu kvótakerfi en útfærslan hefur oft reynst flókin og uppspretta deilna. Frjálslyndir og óháðir vilja að Sveitarfélagið Skagafjörður beiti sér að alefli fyrir fjálsum handfæraveiðum Skagfirðinga í Skagafirði en það yrði
lyftistöng fyrir atvinnulífið."
Afgreiðsla 63. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
 
3. 1006014F - Menningar- og kynningarnefnd - 45
Fundargerð 45. fundar menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 266. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Magnúsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
 
3.1. 1006212 - Kosning formanns Menningar- og kynningarnefndar
Afgreiðsla 45. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
3.2. 1006213 - Kosningar varaformanns Menningar- og kynningarnefndar
Afgreiðsla 45. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
3.3. 1006214 - Kosning ritara Menningar- og kynningarnefndar
Afgreiðsla 45. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
3.4. 1006215 - Staða verkefna á sviði Menningar- og kynningarnefndar
Afgreiðsla 45. fundar menningar- og kynningarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með sex atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar óska bókað að þeir sitji hjá.
 
 
4. 1006007F - Skipulags- og byggingarnefnd - 208
Fundargerð 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 266. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Viggó Jónsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
 
4.1. 1006016 - Grafargerði 146527 - Umsókn um byggingarleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.2. 1006012 - Raftahlíð 31 - Umsókn um byggingarleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.3. 1005285 - Gil land 219239 - Umsókn um byggingarleyfi.
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.4. 1005275 - Ás 2, land 217667 - Umsókn um nafnleyfi.
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.5. 1005201 - Kjarvalsstaðir 146471 - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á
266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.6. 1006032 - Kjarvalsstaðir lóð - Umsókn um landskipti
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum
.
4.7. 1006017 - Gýgjarhóll 145974 - Umsókn um byggingarleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.8. 1006076 - Brúsabyggð 14(146457) - Umsókn um byggingarleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.9. 1006063 - Birkihlíð 33 (143212) - Fyrirspurn um byggingarleyfi
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
4.10. 1006028 - Þakkir í lok kjörtímabils
Afgreiðsla 208. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 266. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
 
5. 1006158 - Kjör fulltrúa - Yfirkjörstjórn
Kjör fulltrúa í yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Hjalti Árnason, Gunnar Sveinsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson
Varamenn: Kristján Sigurpálsson, Guðmundur Vilhelmsson og Halla Másdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
6. 1006165 - Kjör fulltrúa - kjördeild í Fljótum
Kjör fulltrúa í kjördeild í Fljótum, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Haukur Ástvaldsson, Hólmfríður Bergþóra Pétursdóttir, Ríkharður
Jónsson
Varamenn: Sigurbjörg Bjarnadóttir, Íris Jónsdóttir, Örn Albert Þórarinsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
7. 1006164 - Kjör fulltrúa - kjördeild á Hófsósi
Kjör fulltrúa í kjördeild á Hofsósi, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Halldór Ólafsson, Ásdís Garðarsdóttir og Bjarni K. Þórison.
Varamenn: Sigmundur Jóhannesson, Dagmar Þorvaldsdóttir og Einar Einarsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
8. 1006163 - Kjör fulltrúa - kjördeild á Hólum
Kjör fulltrúa í kjördeild í Hólum, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Haraldur Þór Jóhannsson, Hörður Jónsson, Ingibjörg Klara Helgadóttir
Varamenn: Ása Sigurós Jakobsdóttir, Jóhann Bjarnason og Guðrún Þóra Gunnarsdótir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
9. 1006162 - Kjör fulltrúa - kjördeild á Steinsstöðum
Forseti gerir tillögu um að fresta kjöri í kjördeild á Steinsstöðum, samþykkt samhljóða.
 
10. 1006161 - Kjör fulltrúa - kjördeild í Varmahlíð
Kjör fulltrúa í kjördeild í Varmahlíð, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Sigurður Haraldsson, Helgi Sigurðsson og Karl Lúðvíksson.
Varamenn: Sigfús Pétursson, Erna Geirsdóttir og Ragnar Gunnlaugsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
11. 1006160 - Kjör fulltrúa í kjördeild á Sauðárkróki
Kjör fulltrúa í kjördeild á Sauðárkróki, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um fulltrúa, aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Konráð Gíslason, Atli Víðir Hjartarson og Eva Sigurðardóttir.
Varmenn: Ágústa Eiríksdóttir, Reynir Kárason og Magnús Helgason
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
12. 1006159 - Kjör fulltrúa í kjördeild á Skaga
Kjör fulltrúa í kjördeild í Skaga, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Brynja Ólafsdóttir, Jón Stefánsson og Steinn Rögnvaldsson
Varamenn: Guðrún Halldóra Björnsdóttir, Jósefína Erlensdóttir og Jón Benediktsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
13. 1006166 - Kjör fulltrúa - kjördeild á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
Kjör fulltrúa í kjördeild á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks, til eins árs í senn, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Jón Karlsson, Pétur Pétursson, Gunnar S Steingrímsson
Varmenn: Ásta Pálmadóttir, Sigurður Karl Bjarnason og Björn Björnsson.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
14. 1006139 - Kjör fulltrúa í stjórn Hátækniseturs Íslands ses
Forseti gerir tillögu um að fresta kjöri í stjórn Hátæknisetur Íslands ses, að beiðni minnihluta, samþykkt samhljóða.
 
15. 1006138 - Kjör fulltrúa í stjórn SSNV
Kjör fulltrúa í stjórn SSNV, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Bjarni Jónsson og Sigurjón Þórðarson
Varmenn: Stefán Vagn Stefánsson og Hrefna Gerður Björnsdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
16. 1006137 - Kjör fulltrúa í stjórn Ferðasmiðjunnar ehf
Kjör fulltrúa í stjórn Ferðasmiðjunnar ehf, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Stefán Vagn Stefánsson og Guðmundur Þór Guðmundsson
Varamenn: Sigríður Magnúsdóttir og Ingvar Páll Ingvarsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
17. 1006134 - Kjör fulltrúa í verkefnisstjórn Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði
Kjör fulltrúa í verkefnisstjórn Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði, til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Valdimar Sigmarsson
Varamaður: Bjarki Tryggvason
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
18. 1006132 - Kjör fulltrúa í stjórn UB Koltrefja ehf
Kjör fulltrúa í stjórn UB Koltrefja ehf, til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Bjarki Tryggvason
Varamaður: Jón Ægir Ingólfsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
19. 1006130 - Kjör fulltrúa í fulltrúaráð Farskólans – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
Kjör fulltrúa í fulltrúaráð Farskólans - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Arnþrúður Heimisdóttir
Varamaður: Sigríður Magnúsdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
20. 1006129 - Kjör fulltrúa í Norðurá bs
Kjör fulltrúa í Norðurá bs, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Gísli Árnason og Jón Sigurðsson
Varamenn: Einar E. Einarsson og Jón Magnússon
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
21. 1006128 - Kjör fulltrúa í stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra
Kjör fulltrúa í stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra, til fjögurra ára, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Sigríður Magnúsdóttir, Sigurlaug Konráðsdóttir og Árni Gísli Brynleifson
Varamenn: Elinborg Hilmarsdóttir, Ólafur Þ Hallgrímsson og Helga Steinarsdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
22. 1006126 - Kjör fulltrúa í samstarfsnefnd um lögreglumálefni sbr. lögreglulög.
Kjör fulltrúa í samstarfsnefnd um lögreglumálefni sbr. lögreglulög, til fjögurra ára, einn aðalmann.
Forseti bar upp tillögu um aðalmann.
Aðalmaður: Bjarni Jónsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
23. 1006125 - Kjör fulltrúa í samstarfsnefnd um Hólastað
Forseti gerir tillögu, að ósk minnihluta, um að fresta kjöri fulltrúa í
samstarfsnefnd um Hólastað, samþykkt samhljóða.
 
24. 1006124 - Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Flugu ehf
Forseti gerir tillögu, að ósk minnihluta, um að fresta kjöri fulltrúa á aðal- og
hluthafafund Flugu ehf, samþykkt samhljóða.
 
25. 1006123 - Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Eyvindastaðaheiðar ehf
Forseti gerir tillögu, að ósk minnihluta, um að fresta kjöri fulltrúa á aðal- og hluthafafund Eyvindastaðarheiðar ehf, samþykkt samhljóða.
 
26. 1006122 - Kjör fulltrúa í Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra
Kjör fulltrúa í Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Arnrún Halla Arnónsdóttir og Guðrún Helgadóttir
Varmenn: Elínborg Hilmarsdóttir og Guðni Kristjánsson
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
27. 1006121 - Kjör fulltrúa í stjórn Menningarsetur Skagafjarðar í
Varmahlíð
Forseti gerir tillögu, að ósk minnihluta, um að fresta kjöri fulltrúa í stjórn Menningarseturs Skagafjarðar í Varmahlíð. Samþykkt samhljóða.
 
28. 1006120 - Kjör fulltrúa í samstarfsnefnd með Akrahreppi
Kjör fulltrúa í samstarfsnefnd með Akrahreppi, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Gísli Árnason, Sigríður Svavarsdóttir
Varamenn: Stefán Vagn Stefánsson og Jón Magnússon
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
29. 1006119 - Kjör fulltrúa í stjórn Skógræktarsjóðs Skagfirðinga
Forseti gerir tillögu, um að fresta kjöri fulltrúa í stjórn Skógræktarsjóðs Skagfirðinga. Samþykkt samhljóða
 
30. 1006118 - Kjör fulltrúa í Styrktarsjóð Guðrúnar Þ. Sveinsdóttur
Kjör fulltrúa í Styrktarsjóð Guðrúnar Þ. Sveinsdóttur, til fjögurra ára, tvo aðalmenn.
Forseti bar upp tillögu um Elínu Sigurðardóttur og Ólaf Sindrason
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
31. 1006117 - Kjör fulltrúa í stjórn Minningarsjóðs Þórönnu Gunnlaugsdóttur og Halldórs Jónssonar
Kjör fulltrúa í stjórn Minningarsjóð Þórönnu Gunnlaugsdóttur og Halldórs Jónssonar, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Haukur Ástvaldsson og Örn A Þórisson
Varamenn: Hólmfríður Bergþór Pétursdóttir og María Númadóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
32. 1006116 - Kjör fulltrúa í Utanfararsjóð sjúkra í Skagafirði
Kjör fulltrúa í Utanfararsjóð sjúkra í Skagafirði, til fjögurra ára, þrjá aðalmenn.
Forseti bar upp tillögu Gunnar Jóhannesson, Jón Hallur Ingófsson og Halldóra Helgadóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
33. 1006115 - Kjör fulltrúa í Framkvæmdastjórn Byggðasögu
Kjör fulltrúa í Framkvæmdastjórn Byggðasögu til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Björg Baldursdóttir
Varamaður: Ásdís Sigurjónsdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
34. 1006114 - Kjör úttektarmanna
Forseti gerir tillögu um að fresta kjöri úttektarmanna. Samþykkt samhljóða
 
35. 1006111 - Kjör fulltrúa í Almannavarnarnefnd
Kjör fulltrúa í Almannavarnarnefnd, til fjögurra ára, tvo aðalmenn og tvo til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmaður: Viggó Jónsson og Sigurjón Þórðarson
Varamaður Bjarni Jónsson og Guðný Kjartansdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
36. 1006110 - Kjör fulltrúa í Starfsmenntunarsjóð
Kjör fulltrúa í Starfsmenntunarsjóð SFS, til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Unnur Sævarsdóttir
Varamaður Harpa Kristinsdóttir
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
37. 1006105 - Kjör fulltrúa í Kjaranefnd
Forseti gerir tillögu um að fresta kjöri fulltrúa í kjaranefnd. Samþykkt samhljóða
 
38. 1006104 - Kjör fulltrúa í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar
Kjör fulltrúa í stjórn Húsnæðissamvinnufélag Skagafjaðrar, til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Guðrún Sighvatsdóttir
Varamaður: Gísli Árnason
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
39. 1006102 - Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Tímatákns ehf.
Kjör fulltrúa á aðal- og hluthafafund Tímatákns ehf. til fjögurra ára, þrjá aðalmenn,
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn.
Aðalmenn: Unnar Rafn Ingvarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson og Sigríður Sigurðardóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
40. 1006101 - Kjör í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Bunabótafélags Íslands
Kjör fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands til fjögurra ára, einn aðalmann og einn til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðal- og varamann.
Aðalmaður: Gisli Árnason
Varamaður: Bjarki Tryggvason
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
41. 1006100 - Kjör fulltrúa á ársþing SSNV
Kjör fulltrúa ársþing SSNV, til fjögurra ára, tólf aðalmenn og tólf til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Stefán Vagn Stefánsson, Sigríður Magnúsdóttir, Bjarki Tryggvason, Viggó Jónsson, Bjarni Jónsson, Jón Magnússon, Sigríður Svavarsdóttir, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Úlfar Sveinsson og Margeir Friðriksson
Varamenn: Þórdís Friðbjörnsdóttir, Einar E Einarsson, Elinborg Hilmarsdóttir, Ingi Björn Árnason, Gísli Árnason, Gísli Sigurðsson, Haraldur Þór Jóhannsson, Þorteinn Tómas Broddason, Hrefna Gerður Björnsdóttir og Arnrún Halla Arnórsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
42. 1006099 - Kjör fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Kjör fulltrúa á landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga til fjögurra ára, þrjá aðalmenn og þrjá til vara.
Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.
Aðalmenn: Bjarni Jónsson, Stefán Vagn Stefánsson og Jón Magnússon
Varamenn: Gísli Árnason, Viggó Jónsson og Sigríður Svavarsdóttir.
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þessir því rétt kjörnir.
 
43. 1006026 - Tillaga um heildarendurskoðun á rekstri
Tillaga sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar sem vísað var frá fundi sveitarstjórnar þann 8. júní sl.
Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og kynnti tillöguna.
1. Sveitarstjórn samþykkir að leggja til við vitakandi nýkjörna sveitarstjórn að mynduð verði á fyrsta reglulega fundi hennar starfsnefnd sem vinni með ráðgjafa (ráðgjafafyrirtæki) að tillögugerð um heildarendurskipulagningu á rekstri sveitarélagsins og stofnana þess.
Formaður nefndarinnar yrði kjörinn sérstaklega en auk þess tilnefndi hver listi sem sæti á í sveitarstjórn einn fulltrúa í nefndina. Formaður starfi að verkefninu á starfstíma nefndarinnar samkvæmt sérstökum samningi sem við hann yrði gerður og staðfestur af byggðarráði og sveitarstjórn. Aðrir nefndarmenn fái laun sambærileg launum aðalfulltrúa í fastanefndum
sveitarfélagsins á starfstíma hennar. Með nefndinni starfi sveitarstjóri eftir þörfum og aðrir sem hann og/eða nefndin kallar til.
2. Starfsnefndin, í samvinnu við sveitarstjóra, gangi frá samningi við ráðgjafafyrirtæki að undangenginni tilboðsgjöf frá völdum aðilum í það verkefni að vinna með nefndinni að tillögugerðinni, þ.m.t. tillögum að breytingum á samþykktum og reglum sem í gildi eru og tillögugerð nefndarinnar mögulega kallaði á. Gert yrði ráð fyrir að nefndin hafi sem viðmið ákveðin markmið um sparnað í rekstri sem stefnt skuli að því að ná. Samningur við ráðgefandi aðila leggist fyrir byggðarráð og hljóti staðfestingu þess áður en samningur tæki endanlega gildi. Nefndin hæfi störf strax og hún hefur verið sett á laggirnar og yrði gert að skila niðurstöðu innan ákveðins tilskilins frests samkvæmt nánari ákvörðun sveitarstjórnar þar um.
3. Gerðar verði nauðsynlegar breytingar á fjárhagsáætlun núlíðandi árs til að mæta áætluðum kostnaði við verkefnið þegar fyrir liggur tillaga að samningi við ráðgjafa og annað fyrirkomulag vinnunnar.
 
Greinargerð:
Rætt hefur verið um nokkurn tíma að til þurfi að koma markviss vinna að endurskoðun á rekstri sveitarfélagsins og var því m.a. mjög haldið á lofti í tengslum við umræðu um stækkun Árskóla og flutning allrar starfsemi skólans ásamt tónlistarskóla undir eitt þak. Var tekið á þessu atriði í tillögum sem fluttar voru á sveitarstjórnarfundi þeim sem fjallaði sérstaklega um stækkunaráform Árskóla nú nýverið. Hef ég mjög oft minnst á nauðsyn þessa og því er þessi tillaga til komin. Skýrslur þær sem sveitarstjórn lét vinna og umsagnir vegna áforma um nýbyggingu við Árskóla taka einnig mjög skýrt á þessu atriði og er þar rakin afar brýn þörf á tiltekt í rekstri sveitarfélagsins og stofnana þess, burtséð frá því hvort ráðist yrði í þá framkvæmd eður ei. Ég hefði kosið að koma með þessa tillögu eða svipaða miklu fyrr en nú er hún lögð fram vegna þess að stutt er í það að núverandi sveitarstjórn missi umboð sitt og að undirritaður hætti störfum sem sveitarstjóri að eigin ósk. Ég tel mikilvægt að sú sveitarstjórn sem nú situr ljúki þessari umræðu allri með því að leggja til að þessari skoðun verði hrundið af stað og ég lít á það sem eðlilegt framhald á þeirri vinnu sem sveitarstjórnin hefur unnið að hvað hagræðingu og sparnað í rekstri varðar og þeim árangri sem þrátt fyrir allt hefur náðst. Þessi sveitarstjórn ber ekki ábyrgð á því hruni sem varð og hefur orðið að takast á við það erfiða verkefni að ná fram auknu hagræði og sparnaði í rekstri á sama tíma og tekjur sveitarfélagsins hafa lækkað umtalsvert.
Ég fjalla um stöðu mála í skýrslu minni um ársreikning sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir árið 2009 og þá þróun sem hefur orðið hvað tekjur sveitarfélagsins varðar á undanförnum árum. Læt ég hana einnig fylgja fundargögnum sem viðbót við þessa greinargerð. Vegna tekjufallsins fara til greiðslu launa og launatengdra gjalda 61,4%af heildartekjum A hlutans og það er einfaldlega allt of hátt hlutfall og alveg deginum ljósara að grípa þarf til sparnaðaraðgerða í rekstrinum þar sem komið er að því að horfa verður til þessa rekstrarþáttar, þ.e. launakostnaðar alveg sérstaklega, því miður. Hjá því verður að mínu mati ekki komist. Ég nefni launaþáttiinn hér þar sem hann er stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í rekstri sveitarfélaga og þó unnið hafi verið að sparnaði og hagræðingu á ýmsum sviðum,þ.m.t. hvað þennan lið varðar, þá þarf meira til svo hægt verði að halda í við tekjufallið. Ég þori varla að hugsa þá hugsun til enda ef við stæðum frammi fyrir því að sá árangur sem þó hefur náðst í sparnaði hefði ekki komið til.
Ég tel því að það sé rökrétt framhald á þeirri vinnu sem þessi sveitarstjórn hefur unnið að á kjörtímabilinu og m.t.t. þeirra skýrslna sem hún hefur látið vinna fyrir sig og benda mjög eindregið á nauðsyn aukins hagræðis í öllum rekstri að leggja fram tillögu þess efnis að til ítarlegrar skoðunar á rekstri verði stofnað með ákveðinni skýrri aðferðafræði. Ég tel nauðsynlegt fyrir þá sveitarstjórn sem nú er að kveðja að hún komi þeim skilaboðum skýrt á framfæri við nýja sveitarstjórn hver sýn hennar er á næstu skref í þessu mikilvæga máli.
Hvað framsetningu tillögunnar varðar tel ég mikilvægt að saman fari í þessari vinnu með skýrum hætti sýn glöggra gesta augna, þ.e. utanaðkomandi ráðgjafa, og þekking og reynsla heimamanna sem veldust til starfa í umræddri starfsnefnd.
Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri.
 
Stefán Vagn Stefánsson tók aftur til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til byggðarráðs til umfjöllunar.
 
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Sigurjón Þórðarson kvöddu sér hljóðs.
 
Tillaga Stefáns Vagns Stefánssonar borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
 
44. 1006222 - Námskeið í sveitarstjórnarlögum
Sigurjón Þórðarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu.
 
Sveitarstjórn Skagafjarðar fer þess á leit við Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytið að það standi fyrir námskeiði í sveitarstjórnarlögum og þá sérstaklega í fundarsköpum fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
 
Greinargerð:
Það er mikilvægt að það ríki sátt og einhugur um hvernig fundum í Sveitarstjórn Skagafjarðar skuli háttað og stjórnað. Sömuleiðis að það sé sýnd lipurð og velvilji við úrlausn ágreiningsmála. Flutningsmaður tillögunnar er nýliði í sveitarstjórn en hefur engu að síður nokkra reynslu af störfum í stjórnsýslu og lokið námi í opinberri stjórnsýslu, er þess viss um að stutt námskeið í sveitarstjórnalögum geti verið mjög nytsamlegt.
Meirihluti fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar hafa ekki áður setið í stjórn sveitarfélags og sömuleiðis er forseti, Bjarni Jónsson og formaður byggðaráðs, Stefán Vagn Stefánsson nýliðar í að stjórna fundum sveitarstjórnar og byggðaráðs. Á fyrsta fundi nýkjörinnar sást skiljanlega ákveðinn byrjendabragur á stjórn fundarins sem leiddi til þess að tekist á um form en ekki efnisatriði mála. Tilviljunarkennt virtist hvaða mál lentu á dagskrá fundarins og sömuleiðis áhöld um hvað og jafnvel hvort að sveitarstjórnarfulltrúar fengju að gera bókanir á fundinum. Einnig varð talsverð rekistefna um hvort tillaga, breytingatillaga eða jafnvel
frávísunartillaga væri til umræða hverju sinni.
Á fyrsta fundi byggðaráðs var tillaga sem kom frá áheyrnafulltrúa ekki tekin á dagskrá eða umræðu. Tillagan var um að á dagskrá væri tekin umræða um: boðað samstarf meirihluta sveitarstjórnar við fulltrúa allra framboða, hagræðingar- og sparnaðaráform sveitarfélagsins og byggingaráform í Sveitarfélaginu. Þegar flutningsmaður tillögunnar leitaði skýringa á því hvers vegna tillagan væri ekki á dagskrá, þá voru svörin óljós og án nokkurra skýrrar vísunar í sveitarstjórnarlög eða samþykkta Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Til þess að tryggja farsæla stjórn og samvinnu allra sveitarstjórnarfulltrúa með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi væri skynsamlegt að halda námskeið sem allra fyrst þar sem farið yrði yfir sveitarstjórnarlögin. Það er mikilvægt að það sé sameiginlegur skilningur á því hvaða form skuli vera á umræðum þannig að hægt sé að ræða óhikað efni mála.Það er
 ljóst að sveitarstjórnin mun þurfa að glíma við erfið mál og þess vegna er mikilvægt er að allir sameinist um að skerpa á sameiginlegum skilningi á innihaldi sveitarstjórnarlagann.
Sigurjón Þórðarson
 
Stefán Vagn Stefánsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun meirihluta.
 
Þegar liggur fyrir að KPMG mun bjóða upp á námskeið í ágúst næstkomandi þar sem farið verður yfir sveitarstjórnarlögin og almenna stjórnsýslu sveitarfélaga af einum helsta sérfræðingi landsins á því sviði, Sesselju Árnadóttur lögfræðingi. Kristján Jónasson endurskoðandi mun fara yfir þær reglur sem gilda um reiknisskil sveitarfélaga. Hann mun
 ennfremur fara yfir uppbyggingu stjórnsýslu sveitarfélagsins og rekstur málaflokka og stofnanna ásamt skilgreiningum á lykiltölum. Tillaga fulltrúa Frjálslyndra og óháðra er því óþörf.
 
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir tók til máls, þá Bjarni Jónsson með leyfi varaforseta og Sigurjón Þórðarson.
 
Tillaga Sigurjóns borin undir atkvæði og felld með fimm atkvæðu gegn
fjórum.
Sigurjón Þórðarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun vegna bókunnar meirihluta:
Vegna bókunar meirihluta vill Sigurjón Þórðarsonar, að það komi fram að hvergi hefur komið fram á fundum Sveitarfélagsins Skagafjarðar að leitað hafi verið eftir því að KPMG haldi fyrrgreint námskeið, en ég fagna þeirri útkomu sérstaklega í ljósi þess að meirihlutinn hefur fellt tillögu mína um námskeið á vegum sveitarstjórnarráðuneytisins.
 
45. 1006232 - Tillaga um áheyrnarfulltrúa í fastanefndum
sveitarfélagsins
Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og lagði fram tillögu meirihluta.
 
Lagt er til að áfram verði gert ráð fyrir einum áheyrnarfulltrúa, tilnefndum sameiginlega af þeim framboðum eða flokkum sem ekki fá kjörinn fulltrúa í eftirtaldar fastanefndir sveitarfélagsins; skipulags- og bygginganefnd, fræðslunefnd, félags- og tómstundanefnd, atvinnu- og ferðamálanefnd, menningar- og kynningarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Fundi þeirra nefnda sitji því einn áheyrnarfulltrúi auk 3 fastafulltrúa líkt og seinni hluta síðasta kjörtímabils.
Ennfremur verði í fyrsta skipti gert ráð fyrir einum áheyrnarfulltrúa í landbúnaðarnefnd, tilnefndum með sama hætti, sameiginlega af þeim framboðum eða flokkum sem ekki fá kjörinn fulltrúa í nefndina. Farið verði frekar yfir fyrirkomulag varðandi áheyrnarfulltrúa og fjölda þeirra, samhliða yfirferð á samþykktum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknarflokks og Vinstri grænna.
 
Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og lagði til að tillögunni verði frestað, var það samþykkt samhljóða.
 
46. 1006219 - Sumarleyfi sveitarstjórnar - tillaga um afgr.heimild til byggðarráðs
Forseti Bjarni Jónsson bar upp eftirfarandi tillögu:
"Undirritaður leggur til að byggðarráð fái heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar skv. 5. gr. II. kafla samþykktar sveitarfélagsins. Sumarleyfið hefst 2. júlí og lýkur 20. ágúst 2010.”
Tillagan borin undir atkv. og samþykkt samhljóða.
 
47. 1001197 - Fundargerðir Skagafjarðarveitna 2010
Fundargerð stjórnar Skagafjarðarveitna frá 22. júní 2010 lögð fram til kynningar á 266. fundi sveitarstjórnar.
 
48. 1001199 - Heilbrigðiseftirlitið: Fundargerðir 2010
Fundargerð heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra frá 11. júní 2010 lögð fram til kynningar á 266. fundi sveitarstjórnar.
 
49. 1001196 - SSNV - Fundargerðir 2010
Fundargerð SSNV frá 21. júní 2010 lögð fram til kynningar á 266. fundi sveitarstjórnar.
 
Fleira ekki gert.
 
Fundi slitið kl. 17:54.
Til baka