| 22.08.2007 - - Fundur 209 - Sveitarstjórn Sveitarstjórn Skagafjarðar Fundur 209 - 21. ágúst 2007 Ár 2007, þriðjudaginn 21. ágúst kl. 16:00, kom Sveitarstjórn Skagafjarðar saman til fundar í Safnahúsinu við Faxatorg á Sauðárkróki. Mætt voru: Gunnar Bragi Sveinsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Einar Eðvald Einarsson, Sigurður Árnason, Páll Dagbjartsson, Jón Sigurðsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson. Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri. Fundarritari var Engilráð Margrét Sigurðardóttir. Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til starfa eftir sumarfrí sveitarstjórnar.
Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Einar E. Einarsson, fleiri ekki. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Nefndir, ráð og stjórnir, sem Bjarni hefur átt sæti í eru: Sveitarstjórn, Byggðaráð, Atv.- og ferðamálanefnd, Landsþing Samb.ísl. sveitarfél., Stjórn SSNV, Ársþing SSNV, Samstarfsn. með Akrahreppi, Stjórn Náttúrustofu Nl.v., Kjaranefnd, Stjórn Eyvindarstaðaheiðar, Nefnd um endursk. Samþykkta sveitarfél., Samstarfsnefnd með Hólaskóla, Byggingarnefnd Miðgarðs, Aðal- og hluthafafundir Skagafjarðarveitna, Stjórn Flugu ehf. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Bjarna Egilssyni lausn frá sveitarstjórnarmálum í Skagafirði og þakkar honum vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Forseti, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og þakkaði Bjarna Egilssyni öll hans störf í þágu sveitarfélagsins og afar gott samstarf og óskaði Bjarna velfarnaðar á nýjum vettvangi. Páll Dagbjartsson kvaddi sér einnig hljóðs til að ítreka þakkir til Bjarna Egilssonar fyrir mjög gott samstarf að málefnum sveitarfélagsins, sem og góðar óskir til handa honum og fjölskyldu hans í nýjum heimkynnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Páli Dagbjartssyni lausn frá setu í þessum nefndum.
Gísli Sigurðsson færist upp og verður aðalmaður í Sveitarstjórn og Jón Sigurðsson verður 1. varamaður D-lista. Þessir aðilar voru tilnefndir í nefndir, ráð og stjórnir: (Aðalm) (Varam) Byggðaráð Páll Dagbjartsson (áður varam.) Sigríður Björnsd. (nýr varam.) Atv.- og ferðamálanefnd Páll Dagbjartsson Landsþing Samb.ísl. sveitarfél. Páll Dagbjartsson (áður varam.) Sigríður Björnsd. (nýr varam.) Stjórn SSNV Páll Dagbjartsson (áður varam.) Sigríður Björnsd. (nýr varam.) Ársþing SSNV Gísli Sigurðsson (áður varam.) Magnea Guðmundsd. (nýr varam.) Bjarni K. Þórisson (nýr varam.) Samstarfsn. með Akrahr. Sigríður Björnsdóttir Stjórn Náttúrustofu Sigríður Björnsdóttir (áður varam.) Vignir Kjartansson (nýr varam.) Kjaranefnd Páll Dagbjartsson (áður varam.) Jón Sigurðsson (nýr varam.) Stjórn Eyvindarstaðaheiðar Smári Borgarsson Nefnd um endurskoðun Samþykkta sveitarfél. Páll Dagbjartsson Samstarfsn með Hólaskóla Páll Dagbjartsson Aðal- og hluthafafundir Skagafjarðarveitna: Sigríður Björnsdóttir (áður varam.) Magnea Guðmundsd. (nýr varam.) Gísli Sigurðsson (áður varam.) Bjarni K. Þórisson (nýr varam.) Fleiri tilnefningar bárust ekki og skoðast þessir aðilar því rétt kjörnir. Tilnefningar í nefndir, ráð og stjórnir í stað Páls Dagbjartssonar: Þessar tilnefningar komu fram: Skipul.- og byggingarn. Gísli Sigurðsson (áður varam.) Vignir Kjartansson (nýr varam.) Menningar- og kynningarn. Bjarni K. Þórisson Norðurá b.s. Vignir Kjartansson Fleiri tilnefningar bárust ekki og skoðast þessir því rétt kjörnir.
„Undirritaður telur að kanna eigi frekar þær hugmyndir og ábendingar sem fram koma í athugasemdum Harðar Ingimarssonar varðandi tillögu að deiliskipulagi við Ártorg. Því tel ég ekki rétt nú að auglýsa deiliskipulagstillöguna óbreytta.“ Bjarni Jónsson. Þá tóku til máls Páll Dagbjartsson, Einar E. Einarsson, Bjarni Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, fleiri ekki. Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:42. Engilráð Margrét Sigurðardóttir, ritari fundargerðar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Til baka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||