 Heimilisfangið er: Áskaffi hjá Glaumbæ, 560 VARMAHLÍÐ Sími: 453 8855 / 699 6102 Netfang: askaffi@askaffi.is Veffang: www.askaffi.is | Áskaffi er í húsi sem var flutt í Glaumbæ frá Ási í Hegranesi, og er í daglegu tali kallað Áshúsið. Það stendur sunnan við bæjarhólinn sem gamli bærinn stendur á. Þar inni ilmar allt af kaffi og heitu súkkulaði, eins og hjá ömmu. Einnig er boðið upp á te, mjólk og gosdrykki. Meðlætið er af ýmsum gerðum. Sjá hér til hliðar. Sjá nánar hér. | Matseðill í hádeginu fyrir 10 manns eða fleiri: Fiskisúpa, kjötsúpa, hrossakjöt, skyr með rjóma og smurðu brauði ss. rúgbrauð með hangikjöti og soðið brauð (steikt brauð) með reyktum laxi. Einnig er boðið upp á lambalæri eins og hjá ömmu, fyrir hópa ef pantað er með fyrirvara.
Ef þig langar í kleinu, pönnuköku eða annað gamaldags góðgæti skaltu endilega koma við. | Áskaffi er opið alla daga frá 9 til 18 á tímabilinu 1. júní - 31. ágúst, og eftir samkomulagi. Kaffistofan rúmar um 40 manns í sæti. Æskilegt er að hópar panti hádegisverð með góðum fyrirvara.
Merkið stendur fyrir skagfirskt hráefni og skagfirskar hefðir. |  |
|