| 13. febrúar 2012 |
| Vísnavefurinn
|
Eins og notendum Vísnavefjar Héraðsskjalasafns Skagfirðinga er kunnugt hefur vefurinn legið niðri um nokkra hríð. Nú hefur Vísnavefurinn farið í samstarf við Bragagrunn Stofnunar Árna Magnússonar og opnar nú að nýju. Vísnagrunnarnir eru aðskyldir að öðru leyti en því að höfundaskráin er sú sama. Fleiri söfn munu bætast í hópinn á næstu misserum og þannig verður til öflugri og betri grunnur. Á Vísnavefnum er hægt að leita að lausavísum og höfundum vísna, jafnframt er hægt að fræðast um vísnagerð og braghætti á vefnum. Slóðin er www.arnastofnun.is/bragi Fjölmargir hafa nýtt sér þetta verkefni á undanförnum árum m.a. til rannsókna á þessum forna menningararfi íslendinga. Það er von okkar sem að verkefninu stöndum að það verði til gagns og gleði. Hvetjum við notendur til að senda okkur línu með ábendingum eða upplýsingum um það sem betur má fara í netfangið skjalasafn@skagafjordur.is . Mikið er af villum í grunninum og er unnið að því að fækka þeim eins og nokkur kostur er. Jafnframt er afar mikilvægt að fá sem fyllstar upplýsingar um vísnahöfunda. Þegar þetta er ritað eru skráðir vísnahöfundar um 2300 og vísur um 30.000 talsins. |
| Til baka |