Menningarlífið er ein af auðlindum Skagafjarðar. Með þessari stefnu er lagður grunnur að eflingu þess og auknu aðgengi heimamanna jafnt sem ferðafólks að þessari auðlind. Stefnt er að menningarstarfi um allt héraðið, að nýta þá aðstöðu og uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað og að byggja á sterkum menningarhefðum Skagafjarðar.
1. Sveitarfélagið Skagafjörður stefnir að því að sinna myndarlega því sögulega og menningarlega hlutverki sem það hefur í héraði sem er ríkt af sögu og menningu. 1a. Með langtímasstefnu og áætlanagerð um uppbyggingu og fjármögnun þess menningartarfs sem sveitarfélagið tekst á hendur. 1b. Með öflugri starfsemi menningarstofnana sveitarfélagsins; menningarmiðstöðva, safna og skóla. 1c. Með markvissri uppbyggingu aðstöðu til menningarstarfs, þ.e. húsnæðis safna og húsnæðis fyrir menningarviðburði.
2. Sveitarfélagið Skagafjörður mun beita sér fyrir gerð starfssamninga við helstu samstarfsaðila í menningarstarfi; íslenska ríkið, önnur sveitarfélög, stofnanir og félagasamtök, til þess að treysta grundvöll menningarstarfsins.
3. Sveitarfélagið Skagafjörður mun efla starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga, Héraðsbókasafns Skagfirðinga, Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og Listasafns Skagfirðinga.
4. Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir öflugri listmenntun með rekstri tónlistarskóla og rækt við listgreinakennslu í grunnskólum auk liststarfsemi í æskulýðs- og félagssstarfi.
5. Sveitarfélagið Skagafjörður mun starfrækja miðstöðvar menningarstarfs í þeim kjörnum byggðar og þjónustu sem fyrir eru í héraðinu; Hofsós, Hólum, Sauðárkrók og Varmahlíð. Listmenntun, félagsaðstaða og félagsstarf unglinga og eldri borgara verði skipulagt þar í samræmi við þróun byggðar og þörf fyrir þjónustu.
6. Sveitarfélagið Skagafjörður mun áfram styðja uppbyggingu Hofsóss sem miðstöðvar menningartengsla við Vesturheim.
7. Sveitarfélagið Skagafjörður mun á grundvelli samnings Byggðasafns, Héraðsskjalasafns og Hólaskóla stuðla að þvi að á Hólum verði sögu staðarins og stöðu hans í sögu þjóðarinnar gerð skil jafnframt því sem þar verði sögusafn íslenska hestsins.
8. Sveitarfélagið Skagafjörður mun byggja stofnanir sínar upp á Sauðárkróki þannig að þar verði miðstöð menningarlífs með aðstöðu til kvikmynda- og leiksýninga, menningarmiðstöð sem veiti mikla og góða þjónustu bókasafns, listasafns og skjalasafns.
9. Sveitarfélagið Skagafjörður mun leggja áherslu á tónlistarlíf og sérstaka uppbyggingu á því sviði í Varmahlíð.
10. Sveitarfélagið Skagafjörður mun reka gestavinnustofu fyrir listamenn. Samþykkt 8. maí 2002, af menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar og í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar 14. maí 2002.
|