| Ásta Björg Pálmadóttir hefur tekið við embætti sveitarstjóra í Skagafirði. Hún tók við lyklum af Ráðhúsinu á Sauðárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar. Starfsfólk Ráðhússins tók á móti Ástu með kökum á kaffistofunni og þakkaði Ásta fyrir góðar móttökur og sagðist hlakka til að takast á við spennandi verkefni hjá sveitarfélaginu. Ásta er fædd og uppalin í Skagafirði, hún sneri aftur í Skagafjörð fyrir 13 árum eftir nám og störf í Reykjavík og síðan hefur hún m.a. starfað hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki og nú síðast sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. Ásta er gift Þór Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Svölu 24 ára, Helgu 15 ára og Pálma 12 ára. Sveitarfélagið býður Ástu velkomna til starfa og þakkar jafnframt Guðmundi Guðlaugssyni fyrir hans störf á síðustu árum. |