Á forsíðu Prenta síðu Veftré Starfsmannasíða Símnúmer sem gott er að vita In English LEITA
Safnahúsinu við Faxatorg | 550 Sauðárkrókur | Sími 453 6640 | Fax 453 6460
Flýtileiðir
 
 
    Vísnavefurinn

    Árið 2002 hófst vinna við gerð gagnagrunns um lausavísur í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga. Verkið var unnið með tilstyrk fjárveitinganefndar Alþingis. Þá tókst að slá inn um 3000 lausavísur úr safni Sigurjóns Sigtryggssonar á Siglufirði, en safnið er varðveitt í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga. Árin 2003 og 2004 var unnið að gerð gagnagrunnsforrits. Þeirri vinnu lauk árið 2004 en jafnframt var safnað miklu af upplýsingum um vísnahöfunda. Í lok september 2004 voru ríflega 5000 vísur skráðar inn í grunninn eftir ríflega 1000 vísnahöfunda, en 15. janúar 2005 voru skráðar 7300 vísur eftir um 1300 höfunda. Síðari hluti verkefnisins var unninn með tilstyrk opinmenning.org  sem hefur styrkt  verkefnið fjárhagslega auk Menningarráðs Norðurlands vestra. Þá hefur Héraðsskjalasafn Skagfirðinga notið stuðnings Ferskeytlunnar ehf. við gerð forritsins. Einkum hefur Kristján Eiríksson íslenskufræðingur á Árnastofnun lagt verkefninu lið. Rétt er að vekja athygli á heimasíðu Ferskeytlunnar en þar má fræðast um margt sem snýr að vísnagerð, bragháttum o.fl.

    Allar upplýsingar um lausavísur, athugasemdir og ábendingar eru vel þegnar. Einkum er mikilsvert að fá upplýsingar um höfunda vísnanna, en í sumum tilfellum hefur reynst mjög erfitt að afla upplýsinga um þá.

    Hér getið þið farið inn á Vísnavefinn.

    Vinsamlegast sendið athugasemdir og ábendingar á netfangið skjalasafn@skagafjordur.is