Minjahúsið á Sauðárkróki var byggt sem vöruhús fyrir Kaupfélag Skagfirðinga árið 1949 og lengst af notað sem slíkt. Eftir 1980 var rekin þar verslun, saumastofa og fleira.
Árið 1997 keypti Sauðárkróksbær húsið til starfsemi Muna - og minjanefndar, sem safnaði munum frá Sauðkrækingum og var eftir það nefnt Minjahúsið. Eftir að skagfirsku sveitarfélögin öll, utan Akrahreppur, og Sauðárkróksbær sameinuðust tók byggðasafnið við rekstri hússins. Það er nú annað aðalaðsetur byggðasafnsins. Á neðri hæðinni eru sýningar frá safninu og á efri hæð þess eru geymslur. Þar er einning aðsetur Fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga. Sýningar í Minjahúsinu: -
frá 2006 Margt býr í moldinni þar sem fjallað er um nýjar heimildir um skagfirska sögu sem komið hafa fram við fornleifarannsóknir í Skagafirði á undanförnum áratugum. -
2005 Glöggt er gests augað. Ljósmyndasýning. Opin allt árið. -
2002 Byggðasafns Skagfirðinga voru sett inn 3 verkstæði til viðbótar járnsmíðaverkstæði Jóns Nik. og opnuð sýning sem kölluð er Gömlu verkstæðunum . Þá var hálf öld var liðin frá opnun fyrstu sýningar safnsins í gamla bænum í Glaumbæ árið 1952. -
1998 - Járnsmíðaverkstæði Jóns Nikodeumssonar sem flutt var inn í húsið í heilu lagi og opnuð sýning á því. Samvinnuverkefni byggðasafns og Muna - og minjanefndar Sauðárkróks. sem voru sameinuð ári seinna og byggðasafninu falinn rekstur hússins. -
1996 - 2004. Sýning á munum úr einkasafni Kristjáns Runólfssonar, sem hýst var í húsinu frá 1997 til ársloka 2004. Minjahúsið fékk nýtt útlit sumarið 2003 þegar það var skrautmálað á allar hliðar. Tilgangurinn er að vekja athygli á húsinu og hlutverki þess á meðan ekki er hægt að ráðast í viðgerðir á ytra byrði þess sem orðnar eru mjög aðkallandi þar sem múrhúð á öllu húsinu og flestir gluggar á efri hæðinni eru ónýt. Á austurhlið hússins er nafn þess og lína sem markar útlínur Skagafjarðar. Á suður- og norðurhliðar hafa verið sett tákn tímans, sól og máni. Gömlum munum ásamt skagfirsku táknunum sverðinu og biskupsbaglinum hefur verið stungið í jörðina, sem máluð er á allar hliðar nema vesturhlið. Allt hverfur til moldar með tímanum og allt er sprottið úr þeim sama jarðvegi. Verkfærin sem hafa verið máluð á húsið eru einskonar tákn um það sem hinn skagfirski jarðvegur hefur gefið af sér. Jafnframt eru þau tákn um það sem sjá má inni í húsinu. Hönnuður verksins er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson myndmenntakennari á Sauðárkróki. Liðsmenn við verkið með honum voru skólaliðar Vinnuskólans. - 1996-1998. Sýning á völdum gripum úr minjasafni Andrésar H. Valberg, sem gaf Sauðárkróksbæ allt minjasafn sitt árið 1988, en flestir munanna voru af Króknum.
|