Útsendingar frá fundum sveitarstjórnar
Íbúagátt
Atvinnuumsókn
Fundagátt skis
Ljósmyndavefur Skagafjarðar
Sundlaugar í Skagafirði
Eyjaflug
Menning og mannlíf í Skagafirði

Skagfirðingar hafa löngum verið kunnir af öflugu félagslífi. Áður var vel þekkt að bændur og búalið fóru í hópum milli bæja og tóku saman lagið. Það er enn gert við góð tækifæri þótt sönglistin sé ekki stunduð á sama hátt og fyrr því óhætt mun að fullyrða að stór hluti Skagafirðinga syngi í kórum eða eigi nána ættingja eða vini í kór. Kórastarf er mjög öflugt. Karlakórinn Heimir www.heimir.is/ , Rökkurkórinn og Skagfirski kammerkórinn starfa allir í Skagafirði en auk þeirra eru fjölmargir kirkjukórar og sönghópar um allt héraðið og sennilega eru Álftagerðisbræður þeirra þekktastir. Dægurtónlistin á sterkar rætur í Skagafirði. Skagfirsk sveifla Geirmundar Valtýssonar er öllum kunn og fleiri hljómsveitir eiga uppruna sinn í héraðinu s.s. hljómsveitin Von. Leiklist í Skagafirði á langa sögu og leiksýningar hafa verið settar upp víðsvegar í héraðinu. Leikfélag Sauðárkróks er eitt öflugusta áhugamannaleikfélag landsins og setur a.m.k. upp tvö leikrit á ári auk annara viðburða sem félagið kemur að. Menningarlíf í Skagafirði hefur verið með fjölbreyttu sniði á síðustu árum. Fyrirlestrar og skemmtanir eru ríkur þáttur í lífi Skagfirðinga. Sæluvikan sem einnig á langa sögu í Skagafirði tengdist lengst af sýslufundi Skagafjarðarsýslu sem stóð í u.þ.b. viku á ári hverju. Líklega má rekja sögu Sælunnar til 1874 en þá var fyrsti sýslufundurinn haldinn á Reynistað og var þar dansað, sungið og leikið. Í Sæluviku sem hefst síðustu helgina í apríl er jafnan mikið um dýrðir í Skagafirði.

Af öðrum stórviðburðum í nútímanmum má nefna sýningu hestamanna Tekið til kostanna, Sveitasælu á Sauðárkróki, Jónsmessuhátíð á Hofsósi og Hólahátið og er þá aðeins fátt eitt nefnt sem til menningarauka er.

Skagfirsku skólarnir, Háskólinn á Hólum, Fjölbrautaskólinn,

 

 

grunnskólarnir og tónlistarskólarnir hafa eflt menningarlíf mikið og eru margvíslegir viðburðir á þeirra vegum stærstan hluta ársins. Þá hafa skagfirsku söfnin lagt sitt af mörkum auk þess sem einstaklingar og félagasamtök eru dugleg við að setja upp skemmtilega viðburði enda eru Skagfirðingar vel kunnugir máltækinu að maður sé manns gaman.