Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
Grunnskólar

Í Sveitarfélaginu Skagafirði eru þrír grunnskólar.  Einn grunnskólanna, Varmahlíðarskóli, er rekinn sameiginlega af sveitarfélaginu Akrahreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði og einn grunnskólanna er rekinn á þremur stöðum.

Við flesta skólana er boðið upp á lengda viðveru eða heilsdagsskóla.

Starfstími skólanna í Sveitarfélaginu Skagafirði er alls staðar 9½  mánuður.

Þeir hefja starfið upp úr 20. ágúst og skólaslit eru víðast í lok maí eða byrjun júní. 

 

Fjöldi nemenda í Grunnskólum í Skagafirði

 

 

Grunnskólar í Skagafirði:

 

Árskóli, Sauðárkróki
v/ Skagfirðingabraut/Freyjugötu

550 Sauðárkrókur
Sími: 4551100

Fax: 4551169, 4551199
Veffang: http://www.arskoli.is
Netfang: arskoli@arskoli.is 
Skólastjóri:
Óskar G. Björnsson
Netfang oskargb@arskoli.is

 

 

 

Í Árskóla er unnið undir einkunnarorðunum lifa – leika – læra. Leitast er við að hafa þau að leiðarljósi í öllu skólastarfinu, þar sem markmiðin eru:

  • Að gefa öllum nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð, sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska.
  • Að auka sjálfstæði nemenda í námi og starfi, efla jákvæða sjálfsmynd þeirra og auka hæfni þeirra í samskiptum við aðra.
  • Að búa nemendur undir virka þátttöku í þjóðfélagi okkar og vekja þá til umhugsunar um það samfélag sem við búum í og hvernig þeir geta haft áhrif á mótun framtíðar sinnar.
  • Að koma til móts við nemandann á því þroskastigi, sem hann er á. 
  • Að gera skólann að aðlaðandi og hlýlegum vinnustað, þannig að nemendum líði vel í skólanum og þeir öðlist þá tilfinningu að hann sé öruggur samastaður í leik og starfi.

Árvist - heilsdagsskóli sem rekinn er í tengslum við Árskóla og ætlaður börnum í 1. - 3. bekk.

v/Freyjugötu                                                                                                   
550 Sauðárkrókur
Sími: 4551188
Smelltu hér til að skoða vefsvæði Árvistar
Deildarstjóri: Sigrún Fossberg Arnardóttir

Markmið Árvistar eru að:

  • veita öruggt skjól
  • veita þroskavænlegt umhverfi
  • hafa gleði og gaman
  • veita vellíðan

 

Grunnskólinn austan Vatna -

Hólum, Hofsósi og Fljótum

 

Skólarnir voru sameinaðir veturinn 2007-2008.

 

Hólum Hjaltadal

551 Sauðárkrókur
Sími: 453 6600/6602

Fax: 453 6675

Aðstoðarskólastjóri:
Jóhann Bjarnason
Netfang: johann@gsh.is

 

Í skólastefnu Grunnskólans að Hólum kemur eftirfarandi m.a. fram: 

  • Við viljum efla vellíðan, öryggi og sjálfstraust nemenda.
  • Við viljum að kurteisi og tillitsemi einkenni samskipti þeirra sem í skólanum eru við nám og störf.
  • Við viljum byggja nemendur upp til að axla ábyrgð á námi sínu, á gerðum sínum og á umgengni sinni.

Hofsós og Sólgarðar

565 Hofsósi/570 Fljót
Sími Hofsósi: 453 7344

Fax: 453 7398
Sími Sólgarðar: 467 1040

Veffang: www.gsh.is  
Netfang: gsh@gsh.is  

Skólastjóri:
Jón Hilmarsson
Netfang: jon@gsh.is

Deildarstjóri Sólgörðum

Guðrún Halldórsdóttir,

Netfang: gudrun@gsh.is

 

 

 

Sú meginstefna sem skólinn vill að fram komi í störfum hans er eftirfarandi:

  • Engir tveir einstaklingar eru eins og því skal reynt að haga skólastarfi í samræmi við þarfir, hæfileika og getu hvers og eins. Mismunandi þroski gerir það að verkum að ekki eru allir reiðubúnir á sama tíma að glíma við sömu verkefni.
  • Hver nemandi er sjálfstæður einstaklingur sem hefur ákveðin réttindi og skyldur, hvort sem er gagnvart sjálfum sér eða öðrum og honum ber smátt og smátt að læra að skipuleggja nám sitt og störf og bera ábyrgð á eigin námi.
  • Skólinn vill að nemendur séu í senn virkir og sjálfstæðir í námi sínu og störfum, þeir öðlist færni til þess að afla sér upplýsinga og tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð.
  • Nám og starf hvers nemanda tengist bæði reynslu hans og umhverfi.
  • Nemendur á mismunandi aldri og með ólíkan þroska vinni saman, hvort sem er í samkennslu eða í vinnuhópum. Nemendur hafa hver sín sérkenni og því þurfa þeir að temja sér umburðarlyndi og vináttu og virða mismunandi skoðanir innan hópsins.
  • Byggt sé ofan á þá þekkingu og reynslu sem nemendur hafa fengið á fyrri stigum skólakerfisins og tekið mið af því námi sem nemendur eiga kost á, á efri stigum og þeir búnir undir það svo sem unnt er.
  • Skóladagur verði alltaf eins samfelldur og nokkur kostur er.
  • Tengsl nemenda við heimabyggð verði treyst, þannig að þeir meti uppruna sinn og umhverfi að verðleikum.
  • Nemendur þekki sem best skagfirska sögu og menningarverðmæti og meti þessa þætti sem hluta þeirrar sjálfsmyndar sem þeir skapa sér, þá án alls hroka og sjálfbirgingsháttar.
  • Hlutverk kennarans er að miðla þekkingu, leiðbeina, aðstoða og skipuleggja, og ásamt nemendum vinna að því að móta skólastarfið, og leita úrlausna á þeim vandamálum sem upp kunna að koma.

 

 

Varmahlíðarskóli (rekinn af Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi)
560 Varmahlíð
Sími: 453-8225

Fax: 453-8863
Veffang:
www.varmahlidarskoli.is
Netfang:
varmahlidarskoli@varmahlidarskoli.is  
Skólastjóri:
Páll Dagbjartsson
Netfang:
pall@varmahlidarskoli.is

 

Stefna skólans: 

  • Í Varmahlíðarskóla er þess vænst að nemendur sýni dugnað og samviskusemi í öllu námi. Framganga þeirra einkennist af háttvísi, prúðmennsku og drenglyndi. Nemendur leggi rækt við manngildi og mannkærleika, - sjálfum sér og samfélaginu til heilla.