Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
6. júní 2007
Hús Frítímans, húsnæði keypt fyrir starfsemina

 

Skrifað var undir samning milli eigenda verslunarinnar Þórðarhöfða og sveitarfélagsins Skagafjarðar um kaup á húsnæðinu að Sæmundargötu 7 og 7a. á Sauðárkróki í gær. Ætlunin er að færa allt tómstundastarf barna, unglinga, ungs fólks og eldri borgara undir sama þak , “Hús Frítímans” og brjóta þannig niður múra milli kynslóða en auka um leið tómstundatilboð þessara íbúa í sveitarfélaginu.

 


Hugmyndin kom fyrst fram fyrir tæpum 4 árum og var á sínum tíma skipaður starfshópur sem í sátu fulltrúar allra þeirra aldurshópa sem ætlunin er að eigi þarna samastað.  Vann hópurinn þá mikilvæga undirbúningsvinnu sem nú nýtist þegar það stóra skref er stigið að kaupa hús undir starfsemina. Markmiðið með starfi Húss frítímans er leynt og ljóst að efla FORVARNIR í víðasta skilningi þess orðs. Sveitarfélagið tekur við húsnæðinu í byrjun júlí og verður þá strax hafist handa við nauðsynlegar breytingar svo starfsemi Húss frítímans geti farið af stað sem allra fyrst.

Á myndinni sjást seljendur Þórðarhöfða , þau Ingva Sigfússon og Arnrúnu Antonsdóttur ásamt Guðmundi Guðlaugssyni sveitarstjóra, sitjandi en standandi fyrir aftan eru þau Gunnar Bragi Sveinsson, formaður Byggðaráðs, María Björk Ingvadóttir, frístundastjóri og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, forseti sveitarstjórnar.

 

Til baka