Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
17. september 2007
Auglýst eftir slökkviliðs- og sjúkraflutningamanni
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður


Brunavarnir Skagafjarðar auglýsia laust til umsóknar  starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns.
Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga, slökkvistörf, reykköfun, björgun og neyðarflutninga. Útkalls- og bakvaktaskylda er utan dagvinnutíma.
Laun eru skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna eða samkvæmt kjarasamningi SFS.

Hæfniskröfur:

Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr reglugerðar nr.792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum:

Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.

Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið.

Hafa iðnmenntun ( sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst og hafi menntun og reynslu í störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Umsóknir
Skriflegum umsóknum skal skila í síðasta lagi mánudaginn 15. október 2007 á skrifstofu sviðsstjóra Umhverfis- og tæknisviðs í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki.

Fylgigögn með umsókn skulu vera : Læknisvottorð, sakavottorð, prófskírteini og ljósrit af ökuskírteini.

Frekari upplýsingar veitir Kári Gunnarsson settur slökkviliðsstjóri í síma 453-5425

Til baka