Slökkviliðsstjóri
Brunavarnir Skagafjarðar óska eftir að ráða slökkviliðsstjóra til starfa.
Slökkviliðsstjóri er yfirmaður Brunavarna Skagafjarðar, ber ábyrgð á starfsemi þeirra og annast daglegan rekstur Brunavarna Skagafjarðar. Helstu verkefni slökkviliðsstjóra eru áætlanagerð, stefnumótun, skýrslugerð, gerð starfsáætlana og fjárhagslegur rekstur, ásamt stjórnun á öllum viðamiklum aðgerðum slökkviliðsins. Slökkviliðsstjóri sér um að búnaður slökkviliðsins, færni og menntun starfsmanna uppfylli þarfir slökkviliðsins. Þá sér slökkviliðsstjóri um öll samskipti við fjölmiðla og almenning varðandi starfsemi slökkviliðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum eða hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður
-
Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs
-
Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
-
Góð almenn tungumála- og tölvukunnátta
-
Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Brunavarnir Skagafjarðar heyra undir Umhverfis- og tæknisvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2007. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Örn Berndsen sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs í síma 455-6000. Netfang jobygg@skagafjordur.is |