12.4.2007
Fréttatilkynning

Um árabil hefur verið ágreiningur um hvernig fara skuli með hugmyndir um virkjanir og aðra nýtingu virkjanasvæða í Aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Frá því að meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar tók við stjórn sveitarfélagsins hefur verið unnið að tillögu er sátt gæti náðst um. Eftirfarandi tillaga var lögð fram á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins nú í dag, markmiðið með henni var að ná sátt um Aðalskipulagstillögu svo hún nái fram að ganga ásamt því að koma á framfæri kröfu Skagfirðinga um nýtingarrétt á auðlindum Héraðsins.

Tillagan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks en fulltrúi Vinstrihreyfingar græns framboðs sat hjá.

“Sveitarstjórn samþykkir að í tillögu að aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið Skagafjörð sem nú er unnið að verði frestað skipulagningu þeirra svæða sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganesvirkjanir sbr. heimildarákv. í 20. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997.

Greinargerð:

Fram hafa komið nýjar hugmyndir sem nú er unnið að rannsóknum á, er gera ráð fyrir breyttri hönnun mögulegra virkjana í Skagafirði. Þær hugmyndir, ef af yrði, þýða mun minni áhrif á náttúru og ferðaþjónustu á svæðinu. Verði þessar hugmyndir að veruleika er horft til þess að hvorug virkjunin verði virkjuð samkvæmt núverandi útfærslum.

Tryggja verður að nýtingarréttur á umræddum svæðum verði í höndum Skagfirðinga og einungis valdir þeir kostir sem efla atvinnu og mannlíf innan héraðs. Þá er það vilji meirihlutans að unnið verði að því að nýtingarréttur jökulánna verði alfarið í höndum heimamanna og tekið er undir þá hugmynd að eignarhald Héraðsvatna hf verði alfarið í höndum Skagfirðinga. Frestun skipulagningar á umræddum svæðum styður við baráttu heimamanna fyrir nýtingarréttinum á vatnasvæðinu í heild.

Ákvarðanir um nýtingu á Jökulsánum í Skagafirði og Héraðsvötnum verða aðeins teknar að undangengnum víðtækum rannsóknum og almennri upplýstri umræðu um kosti og galla nýtingarmöguleika, þar sem leitað verði álits íbúa Skagafjarðar.”

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingu
Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki

Til baka
Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson

Fæddur 9. júní 1968 á Sauðárkróki. 

Kvæntur Elvu Björk Guðmundsdóttur

Börn:
Arnar Þór, Frímann Viktor, Sveinn Rúnar, Ingi Sigþór og Róbert Smári.

Nám:
Stúdentspróf frá FNV 1989.  Atvinnulífsfélagsfræði við Háskóla Íslands árið 1995.

Helstu störf:
Verslunarstjóri Ábæjar. 1989-1990, Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991, Verslunarstjóri Ábæjar 1991- 1995, Skeljungur hf. sölu- og verslunarstjóri 1996-1997, Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997 - 1999, markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999, verslunarsvið Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002, framkvæmdastjóri Ábæjar . 2002 – 2003, framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. frá 2004.
Auk þess hefur Gunnar starfað sem ritstjóri fréttablaðsins Einherja, þjónn, verkamaður, sendibílstjóri ofl.

Félagsstörf:
Gunnar tók mikinn þátt í félagsstarfi í skóla. Sat í stjórn Knattspyrnudeildar Tindastóls og Skíðadeildar Tindastóls. Starfaði með Leikfélagi Sauðárkróks ofl. Gekk í Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði 14 ára gamall og hefur starfað síðan í Framsóknarflokknum. Var formaður Félags ungra Framsóknarmanna. Varaformaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Var í kjöri í  bæjarstjórnarkosningum árið 1990 á Sauðárkróki. Var varamaður í bæjarstjórn og átti sæti í félagsmálaráði Sauðárkróks og fleiri nefndum. 2002 varð Gunnar oddviti framsóknarmanna í Sveitarstjórn Skagafjarðar og situr nú í Byggðarráði og Skipulags og byggingarnefnd  Gunnar situr nú í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar var stjórnarmaður í Hússjóði Öryrkjabandalags Íslands 1998-2000 Formaður stjórnar Varasjóðs Viðbótarlána 1998-2002 og varaformaður stjórnar Varasjóðs Húsnæðismála frá 2002. Gunnar hefur gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn og situr m.a. í miðstjórn flokksins og ýmsum nefndum á vegum hans.

gunnarbragi@fjolnet.is;