 |
Fæddur 9. júní 1968 á Sauðárkróki.
Kvæntur Elvu Björk Guðmundsdóttur
Börn: Arnar Þór, Frímann Viktor, Sveinn Rúnar, Ingi Sigþór og Róbert Smári.
Nám: Stúdentspróf frá FNV 1989. Atvinnulífsfélagsfræði við Háskóla Íslands árið 1995.
Helstu störf: Verslunarstjóri Ábæjar. 1989-1990, Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991, Verslunarstjóri Ábæjar 1991- 1995, Skeljungur hf. sölu- og verslunarstjóri 1996-1997, Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997 - 1999, markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999, verslunarsvið Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002, framkvæmdastjóri Ábæjar . 2002 – 2003, framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. frá 2004. Auk þess hefur Gunnar starfað sem ritstjóri fréttablaðsins Einherja, þjónn, verkamaður, sendibílstjóri ofl.
Félagsstörf: Gunnar tók mikinn þátt í félagsstarfi í skóla. Sat í stjórn Knattspyrnudeildar Tindastóls og Skíðadeildar Tindastóls. Starfaði með Leikfélagi Sauðárkróks ofl. Gekk í Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði 14 ára gamall og hefur starfað síðan í Framsóknarflokknum. Var formaður Félags ungra Framsóknarmanna. Varaformaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Var í kjöri í bæjarstjórnarkosningum árið 1990 á Sauðárkróki. Var varamaður í bæjarstjórn og átti sæti í félagsmálaráði Sauðárkróks og fleiri nefndum. 2002 varð Gunnar oddviti framsóknarmanna í Sveitarstjórn Skagafjarðar og situr nú í Byggðarráði og Skipulags og byggingarnefnd Gunnar situr nú í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar var stjórnarmaður í Hússjóði Öryrkjabandalags Íslands 1998-2000 Formaður stjórnar Varasjóðs Viðbótarlána 1998-2002 og varaformaður stjórnar Varasjóðs Húsnæðismála frá 2002. Gunnar hefur gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn og situr m.a. í miðstjórn flokksins og ýmsum nefndum á vegum hans.
gunnarbragi@fjolnet.is;
|  |