Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
27. apríl 2007
Ársreikningur 2006 lagður fyrir byggðarráð

Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess fyrir árið 2006 var lagður fyrir byggðarráð í gær. Endurskoðandi sveitarfélagsins Kristján Jónasson frá KPMG kynnti helstu niðurstöður reikningsins. Byggðarráð samþykkti að vísa ársreikningnum til sveitarstjórnar til fyrri umræðu, en sveitarstjórn þarf að fjalla um reikninginn í tveimur umræðum til að hann hljóti fullnaðarafgreiðslu.

Samantekin rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins sýnir rekstrarhalla að upphæð 65,1 milljónir króna. Er það 99,7 milljón króna betri niðurstaða en endurskoðuð fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir. Rekstrartekjur námu 2.339 milljónum króna og hækkuðu á milli ára um tæp 15%. Rekstrargjöld hækkuðu um tæp 10% á milli ára. Handbært fé frá rekstri jókst um rúmar 141 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir sveitarfélagsins voru 3,2 milljarðar króna í árslok 2006 og hafa hækkað um 192 milljónir króna á milli ára, eða um 6,46%. Þar af eru lífeyrisskuldbindingar að upphæð 563.595 milljónir króna. Skuldir og skuldbindingar á íbúa eru 774.460 krónur í árslok 2006 og hafa hækkað á milli ára um 52.683 krónur. Veltufjármunir voru í árslok 640 milljónir króna og höfðu hækkað um 126.435 milljónir króna á milli ára. Aukning á handbæru fé á milli ára var 141 milljónir króna. Fjárfestingahreyfingar námu 117,6 milljónum króna nettó.

Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs (gamli sveitarsjóðurinn) er halli að upphæð 4,9 milljónir, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 5,1 milljón króna halla. Inni í rekstrargjöldunum eru reiknaðar áfallnar lífeyrisskuldbindingar að upphæð 78,7 milljónir króna. Afkoma aðalsjóðs batnar um 90 milljón króna á milli ára. Sem fyrr eru það fræðslu- og uppeldismálin sem taka stærstan hlut skatttekna aðalsjóðs eða tæp 57%.

Smelltu hér til að lesa nánari greinargerð og sjá töflu.

Ársreikningurinn verður birtur á heimasíðu sveitarfélagsins síðar.

Til baka