Fara í efni

Helluland land I L222955 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2403133

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 37. fundur - 26.04.2024

Halldór Stefánsson byggingartæknifræðingur sækir f.h. Gunnlaugs Einars Briem um leyfi til að byggja íbúðarhús á lóðinni Klettaborg, (Helluland land I) L222955 í Hegranesi. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 24-184, númer A 100, A 101 og A 102, dagsettir febrúar 2024. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.